Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

acut

Shit shit. Við lentum í svakalegri lífsreynslu með Matthías jr. á sunnud.

Fyrir viku síðan var komið gat á ytra lagið á leggnum hans Matthíasar. Þessi leggur fer beint í lífæð í gegnum bringuna hans. Læknirinn hans og skurðlæknir á landsa ákváðu að líma hann saman með tonnataki svo hann mundi sleppa við að fara í aðgerð og fá nýjan legg.

Á mánudag vorum við stór fjölskyldan í sumarbústað hjá mömmu og pabba. Voða gaman. Nema það að litli kall var orðinn allt í einu svolítið þreyttur og tók Áslaug hann í fangið til að hugga hann. Þá fann hún að bolurinn hans var blautur og lyfti honum upp. Shit shit shitAngry Þá var allt út í blóði og blóðið spýttist á móti henni úr leggnum og panic panic panic. Skinsama Áslaug var búin að spyrja doksann hans Matthíasar hvað ætti að gera ef þetta gerðist (ótrúlegt) og vissi því hvernig ætti að bregðast við. Hún hélt leggnum upp í loft, klemmdi fyrir með puttunum og við brunuðum upp á spítala á Selfossi. Þar fengum við töng til að loka fyrir legginn og svo var kallað á sjúkrabíl. Þá var brunað í bæinn upp á spítala og Matthías lagður inn. Í gær fór hann svo í aðgerð og fékk nýjan legg og fékk svo að fara heim í dag eldhress eins og ekkert hefði gerst.

Þetta var mesta panic sem ég hef lent í. Blóð út um allt og allir í sjokki. brrrrrrrrr. Sem betur fer voru mamma og pabbi með okkur í sumarbústaðnum. Því við vorum með öll börnin 5 með okkur. Það hefði ekki gengið eins vel ef við hefðum þurft að koma öllum upp í bíl með öllu sem því fylgir og fara svo á spítalann á Selfossi. Ég held við förum ekki ein eftir þessa reynslu upp í sumarbústað.

Já það getur allt gerst hjá Matthíasi jr. njfhldfb dfjkfd fdlkvdj svdlkjvskjvd.Devil

Tonnatakið var búið að éta upp legginn og var hann allur í henglum. Ef þetta hefði gerst um nótt þá hefði honum bara blætt út.

Eina jákvæða við þetta er að læknirinn hans er búinn að læra það að það á ekki að líma legg saman með tonna taki.  


Var að kaupa svona :) stuð stuð

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket http://www.youtube.com/watch?v=N4Ex1sC4xMc

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband