Færsluflokkur: Tónlist
Nóg að gera
Miðvikudagur, 30. janúar 2008
Ég er nú ekki sá duglegasti í blogg bransanum. En það er nú sennilega vegna þess að ég hef ekki tíma í að blogga mikið. Nóg að gerast hjá gamla þessa dagana. Að stjórna tónlistarskóla er ekkert grín og því fer mikill tími í að vera að vinna, sem er samt ótrúlega gaman. Ég útsetti mitt fyrsta lag með Sniglabandinu sem tekið var upp sl.mánudag. Það er endurgerð á vinsælu lagi frá þeim í swing Basie fíling. 8 blásarar og læti. Að öllum líkindum fæ ég að sjá um allar brass útsetningar á næsta disk þeirra, sem er mjög spennandi verkefni. Svo er ég líka að blása með þeim ásamt Sigga Perez mínum gamla lærimeistara, Sævari Önd ofl góðum mönnum. Meira af útsetningarverkefnum því ég fékk það verkefni að útsetja 2 lög fyrir Lúðrasveit Verkalýðsins og 200.00 Naglbíta. 5 menn voru valdnir til að útsetja 2 lög og verður þetta tekið upp með útgáfu í huga. Það er mjög mikill heiður að fá að vera með í þessu, þó svo að Verkalýðurinn hefur aldrei verið mín hljómsveit. Spilerí á Brodway á föstud. Þar verður heilmikið Bo Hall show undir stjórn Guðna Braga frá Húsavík. Reyndar verður Bo sjálfur ekki með en hver nennir svo sem að hlusta á hann? Útgáfutónleikarnir mínir verða svo 12 apríl í sal FÍH. Minni á síðuna mína mmusic.is þar sem hægt er að kaupa diskinn minn á spott prís til styrktar einstökum börnum.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Allt að gerast
Laugardagur, 19. janúar 2008
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Takk fyrir stuðninginn
Fimmtudagur, 17. janúar 2008

Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta er magnað
Föstudagur, 11. janúar 2008

![]() |
Hitti konuna í vændishúsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Popp-punktur dagsins
Miðvikudagur, 2. janúar 2008
Reporter: Why do you think you get more fan mail than anyone else in the group?
Ringo Starr: I dunno. I suppose it´s because more people write to me.
-1964

Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Diskurinn
Laugardagur, 22. desember 2007
Jæja, salan á disknum byrjar vel og er amk komin ágætlega fram yfir kostnað. Sem kemur sér vel fyrir einstök börn. Þeir sem vilja hlusta á brot úr lögunum geta farið inn á M-music síðuna mína og klikkað á dálkinn útgáfan og þá er hægt að heyra brot úr lögunum.
Útgáfutónleikar verða svo fimmtudaginn 14.febrúar í Iðnó.
Ég vil þakka enn og aftur öllum þeim frábæru tónlistarmönnum sem gáfu sína vinnu til styrktar þessu málefni og spiluðu með mér. 18 tónlistarmenn af 20 gerðu það og hafði það mjög mikið að segja vegna kostnaðar. Einstök börn fá allan ágóða eftir kostnað af sölunni. 100 %...... Ég hvet alla að tékka á disknum og styrkja gott málefni um hátíðarnar. Diskurinn kostar aðeins 1.500 kr.
Gleðileg jól....
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
M-music kynnir:.
Fimmtudagur, 20. desember 2007
Tónlist | Breytt s.d. kl. 11:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Matti sax / M-project kominn út
Þriðjudagur, 18. desember 2007
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7 9 13 er ekki málið
Sunnudagur, 9. desember 2007
Ég hef verið í tónlistarbransanum í mjög mörg ár. Spilað á mörgum stöðum og dílað við marga verta. En þetta toppar allt. Eins og áður hefur komið fram þá voru fyrirhugaðir jóla tónleikar á stað sem heitir Sjö níu 13 í kvöld (sunnud). Við í bandinu mættum tímanlega til að getað stillt upp og rennt í nokkur lög svona rétt fyrir giggið. En !!! við komum að læstum dyrum. Enginn kom á staðinn, enginn svaraði í síma og ég búinn að plögga og plögga allan daginn. Vá hvað ég varð fúll og reiður. Hverskonar vertar ráða hljómsveit og mæta svo ekki til að opna staðinn. Þetta var auglýst á heimasíðu staðarins og því greynilega ekki um misskilning að ræða. Ég hringdi í stelpuna sem bókaði okkur nokkru sinnum, sendi sms en ekkert svar. Þetta er það súrasta sem ég hef lent í á mínum tónlistarferli. Ég mæli ekki með því að nokkur tónlistarmaður bóki sig á þessum stað. Aldrei !!! Sýnum samstöðu kæru tónlistarmenn.
Ég bið allt það fólk sem kom fíluferð innilegrar afsökunar. Vonandi get ég bætt þetta upp fljótlega með svipuðum tónleikum á stað sem er amk opinn.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 23:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)